12.07.14 - 14:40
Eyþór Ernir Oddsson
Pocognoli til West Brom (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

West Brom hefur styrkt sig fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni en þeir hafa gert þriggja ára samning við belgíska varnarmanninn Sebastien Pocognoli.
Kaupverð er ekki uppgefið en Pocognoli kemur frá Hannover í Þýskalandi og er 26 ára gamall.
Þetta eru fjórðu kaup West Brom á leiktíðinni en fyrir hafa þeir keypt Joleon Lescott frá Manchester City, Craig Gardner frá Sunderland og nýlega Chris Baird frá nýliðum Burnley.
Pocognoli var partur af AZ Alkmaar liðinu sem vann hollensku úrvalsdeildina árið 2009 undir stjórn verðandi þjálfara Manchester United, Louis van Gaal en hann hafði áður leikið með Genk og Standard Liege í Belgíu.

Heimild: Sky Sports