Fotbolti.net
12.07.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Aaron Tshibola til Aston Villa (Staðfest)

Aaron Tshibola til Aston Villa (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Aston Villa

Aston Villa hefur staðfest kaup á miðjumanninum Aaron Tshibola, en hann kemur til liðsins frá Reading.
Tshibola krotaði undir fjögurra ára samning við Aston Villa, en hann er þriðji leikmaðurinn sem liðið fær til sín í sumar. Áður höfðu þeir Tommy Elphick og Pierluigi Gollini samið við félagið.

Tshibola, sem er 21 árs gamall miðjumaður, kom upp úr akademíunni hjá Reading og hefur verið á mála hjá liðinu undanfarin átta ár.

Á síðasta tímabili lék hann 17 leiki fyrir Reading í Championship-deildinni, en meiðsli voru mikið að hrjá hann.

Hann mun spila áfram í Championship-deildinni á komandi tímabili, en eins og frægt er orðið þá féll Aston Villa úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Liðið ætlar sér beint upp aftur með Roberto Di Matteo við stjórnvölin.

Breaking news: We are delighted to confirm the signing of @AaronTshibola on a four year deal. #AVFC #WelcomeAaron pic.twitter.com/vhepMCBhhs

— Aston Villa FC (@AVFCOfficial) July 10, 2016

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.