Fotbolti.net
12.07.16 - 09:19
Magnús Már Einarsson

Björn Bergmann til Molde (Staðfest)

Björn Bergmann Sigurðarson og Ole Gunnar Solskjær þjálfari Molde.

Björn Bergmann Sigurðarson og Ole Gunnar Solskjær þjálfari Molde.

Canon

Mynd: Molde

Björn Bergmann Sigurðarson hefur skrifað undir þriggja ára samning við norska félagið Molde.

Björn kemur frítt til félagsins eftir að samningur hans hjá Wolves í Englandi rann út.

Hinn 25 ára gamli Björn þekkir til hjá Molde því hann skoraði fjögur mörk í sautján leikjum á láni hjá félaginu árið 2014. Björn hjálpaði Molde þá að verða norskur meistari.
Ole Gunnar Solskjær, þjálfari Molde, er mikill aðdáandi Björns og hann sannfærði hann um að ganga í raðir félagsins.

„Eftir að hafa spjallað við Ole Gunnar þá ákvað ég að fara til baka. Það var frábært að vera hér fyrir tveimur árum,\" sagði Björn Bergmann.

Molde er í 7. sæti í norsku úrvalsdeildinni í augnablikinu en Eiður Smári Guðjohnsen er einnig á mála hjá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.