12.07.16 - 14:45
Elvar Geir Magnússon
Joachim Löw með Þjóðverja út HM 2018 (Staðfest)

Joachim Löw tók við sem landsliðsþjálfari Þýskalands 2006.

Mynd: Getty Images

Joachim Löw tók við sem landsliðsþjálfari Þýskalands 2006.

Mynd: Getty Images

Eftir að hafa stýrt Þýskalandi í undanúrslit Evrópumótsins, þar sem liðið tapaði fyrir Frökkum, hefur Joachim Löw staðfest að hann verði áfram þjálfari fram yfir heimsmeistaramótið í Rússlandi 2018.
Löw hefur verið landsliðsþjálfari Þjóðverja í tíu ár og farið með liðið inn í nýja og betri tíma.
Þýskaland er ríkjandi heimsmeistari og stefnir á að verja titil sinn í Rússlandi.
Þýskaland er ríkjandi heimsmeistari og stefnir á að verja titil sinn í Rússlandi.
