12.07.16 - 14:41
Magnús Már Einarsson
Kristófer Ingi til Willem II (Staðfest)

Kristófer Ingi skrifar undir í dag.

Mynd: Stjarnan

Kristófer Ingi skrifar undir í dag.

Mynd: Stjarnan
Hollenska félagið Willem II hefur keypt Kristófer Inga Kristinsson frá Stjörnunni. Kristófer Ingi stóðst í morgun læknisskoðun í Hollandi og skrifaði nú rétt í þessu undir þriggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á Facebook síðu yngri flokka hjá Stjörnunni.
Kristófer mun á næstu vikum hefja undirbúning með félaginu fyrir komandi tímabil.Willem II hélt sér upp í úrvalsdeildinni í Hollandi eftir umspil á síðasta keppnistímabili en Kristófer Ingi mun æfa og leika með varaliði félagsins.
Félagið hefur mikla trú á Stjörnumanninum og hefur útbúið metnaðafulla áætlun til að koma honum sem fyrst inn í aðallið félagins.
Kristófer Ingi sem er 17 ára (fæddur 1999) hefur farið mikið í yngri flokka starfi félagsins leikið á alls oddi. Hann hefur spilað sex leiki fyrir U16 ára landslið Ísland og 15 leikir fyrir U17 á landslið.
„Félagaskiptin eru mikil viðurkenning bæði fyrir hinn metnaðarfulla Kristófer Inga sem og það starf sem unnið er í yngri flokkum Stjörnunnar. Við óskum Kristófer Inga innilega til hamingju og vonum að félagaskiptin verði heillaspor í hans knattspyrnuferli,\" segir á Facebook síðu yngri flokka Stjörnunnar.