12.07.16 - 12:41
Elvar Geir Magnússon
Samuel Umtiti í Barcelona (Staðfest)

Umtiti á æfingu með franska landsliðinu.

Mynd: Getty Images

Spánarmeistarar Barcelona hafa fengið varnarmanninn Samuel Umtiti í sínar raðir. Umtiti er 22 ára franskur varnarmaður sem lék sinn fyrsta A-landsleik þegar Frakkar unnu Íslendinga 5-2 í 8-liða úrslitum Evrópumótsins.
Umtiti, sem er af kamerúnskum ættum, kemur frá Lyon þar sem hann hefur verið fastamaður undanfarin tímabil. Hann lék 38 leiki á liðnu tímabili þegar Lyon hafnaði í öðru sæti frönsku deildarinnar.

Umtiti getur spilað sem miðvörður og sem vinstri bakvörður. Hann er líkamlega sterkur þó hann sé ekki hár í loftinu (1,81m).
Á heimasíðu Barcelona segir að Umtiti sé náttúrulegur leiðtogi enda hafi hann í nokkrum leikjum Lyon verið með fyrirliðabandið.