Fotbolti.net
12.07.16 - 10:26
Magnús Már Einarsson

Vincent Janssen til Tottenham (Staðfest)

Vincent Janssen til Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur keypt framherjann Vincent Janssen frá AZ Alkmaar í Hollandi.

Kaupverðið hljóðar upp á 17 milljónir punda en Janssen skrifaði undir fjögurra ára samning við Tottenham.

Janssen var markahæstur í hollensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili með 27 mörk.

Þessi 22 ára gamli leikmaður var að leika sitt fyrsta tímabil í hollensku úrvalsdeildinni en hann var áður á mála hjá Almere City í B-deildinni.
Fyrr á þessu ári spilaði Janssen sinn fyrsta landsleik með Hollandi en hann hefur skorað þrjú mörk í fyrstu fimm landsleikjum sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.