12.07.16 - 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
West Ham búið að kaupa hinn nýja Rashford (Staðfest)
Var líkt við Rashford en fer nú frá Man. Utd

Fletcher fagnar hér marki

Mynd: Getty Images

Fletcher fagnar hér marki

Mynd: Getty Images
West Ham hefur staðfest kaup á hinum efnilega Ashley Fletcher frá Manchester United. Fletcher er sóknarmaður sem skrifar undir fjögurra ára samning við West Ham.
Hinn tvítugi Fletcher var á láni hjá Barnsley á síðasta tímabili og spilaði vel. Honum hefur verið líkt við Marcus Rashford, sem sló í gegn hjá United undir lok síðasta tímabils.

Hann gekkst undir læknisskoðun í dag og er spenntur fyrir framhaldinu.
„Ég er mjög spenntur fyrir því að vera hér. West Ham er stórt félag og ég er bara ánægður með það að vera kominn hingað,\" sagði Fletcher.
West Ham og Man. Utd munu nú ganga frá smáatriðum, en samningur Fletcher hjá United tók enda undir lok síðasta tímabils.
Hann er þriðji leikmaðurinn úr akademíunni hjá United sem semur við annað lið í dag. Áður samdi Tyler Reid við Swansea og Joe Rothwell við Oxford United.

.@AshFletcher___ is a Hammer! Read the full story ➡️ https://t.co/cKPxIFM6ct ⚒ #WHUFC #WelcomeFletcher pic.twitter.com/zpn2kNJ8x2
— West Ham United FC (@whufc_official) July 12, 2016
Heimild: Goal