12.07.19 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Atlético Madrid kaupir framherja frá Benfica (Staðfest)

Ivan Saponjic er genginn í raðir Atlético Madrid

Mynd: Getty Images

Ivan Saponjic er genginn í raðir Atlético Madrid

Mynd: Getty Images
Spænska félagið Atlético Madrid er búið að ganga frá kaupum á serbneska framherjanum Ivan Saponjic frá Benfica. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Saponjic er 21 árs gamall og kemur til með að berjast um framherjastöðuna við Diego Costa og Alvaro Morata en Joao Felix, sem kom einnig frá Benfica á dögunum, getur spilað sem fremsti maður.
Atlético Madrid greiðir um það bil 8 milljónir evra fyrir Saponjic og gerir hann þriggja ára samning.
Saponjic lék með B-liði Benfica á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 6 mörk í 28 leikjum.
Atlético Madrid greiðir um það bil 8 milljónir evra fyrir Saponjic og gerir hann þriggja ára samning.
Saponjic lék með B-liði Benfica á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 6 mörk í 28 leikjum.
