Lið fyrri umferðar í Pepsi Max-deild kvenna

Elín Metta Jensen er best í umferðum 1-9.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elín Metta Jensen er best í umferðum 1-9.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Smelltu hér til að hlusta á þáttinn
Besti ungi leikmaðurinn: Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir (Breiðablik)
Besti þjálfarinn: Alfreð Elías Jóhannsson (Selfoss)
Varamenn:Kesley Wys (Selfoss)
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir (Selfoss)
Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA)
Dóra María Lárusdóttir (Valur)
Natasha Anasi (Keflavík)
Hlín Eiríksdóttir (Valur)
Svenidís Jane Jónsdóttir (Keflavík)
Smelltu hér til að hlusta á þáttinn

Sandra Sigurðardóttir (Valur) - Hefur varið vel og einungis fengið sjö mörk á sig í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Barbára Sól Gísladóttir (Selfoss) - Hefur verið besti leikmaðurinn hjá spútnikliði Selfyssinga.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðný Árnadóttir (Valur) - Kom til Vals frá FH fyrir tímabilið og hefur komið öflug inn í nýtt lið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristín Dís Árnadóttir (Breiðablik) - Kristín er orðin algjör lykilmaður hjá Blikum þrátt fyrir ungan aldur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir (Breiðablik) - Mjög efnilegur bakvörður sem hefur staðið sig vel í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hildur Antonsdóttir (Breiðablik) - Hefur átt góða leiki á miðjunni hjá Blikum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Cloe Lacasse (ÍBV) - Dregur vagninn í sóknarleik ÍBV eins og undanfarin ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Margrét Lára Viðarsdóttir (Valur) - Markadrottningin hefur skorað sjö mörk í átta leikjum með toppliði Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Agla María Albertsdóttir (Breiðablik) - Agla hefur skilað flottum frammistöðum á kantinum í sumar og skorað átta mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elín Metta Jensen (Valur) - Elín Metta hefur skorað níu mörk og lagt upp fleiri til viðbótar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sandra Mayor (Þór/KA) - Markahæst í deildinni með tíu mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
