Fotbolti.net
12.07.19 - 13:00
Magnús Már Einarsson
Ítalski boltinn

Roma í viðræðum um kaup á Alderweireld

Toby Alderweireld.

Toby Alderweireld.

Canon

Mynd: Getty Images

Daniel Levy, formaður Tottenham, mun í dag funda með Franco Baldini, stjórnarmanni Roma, þar sem þeir munu ræða um möguleg félagaskipti Toby Alderweireld.

Alderweireld er með klásúlu í samningi sínum hjá Tottenham sem leyfir honum að fara á 25 milljónir punda.

Roma vonast til að lækka verðmiðann og það verður til umræðu á fundinum í dag.
Alderweireld á eitt ár eftir af samningi sínum við Tottenham og því getur hann farið frítt næsta sumar ef hann fer ekki núna

Roma vill fá Alderweireld til að fylla skarð Kostas Manolas sem fór til Napoli á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.