Vestri 1 - 0 Þróttur R.
1-0 Viðar Þór Sigurðsson ('90)
1-0 Viðar Þór Sigurðsson ('90)
Vestri tók á móti Þrótti R. á Olísvellinum á Ísafirði í dag. Vestri kom inn í þennan leik eftir 0-1 útisigur á Þór í síðustu umferð. Þróttarar töpuðu fyrir austan gegn Leikni F. í Fjarðabyggðarhöllinni.
Leikurinn var mjög bragðdaufur í 80 mínútur rúmar en eftir það voru föst leikatriði hættuleg og heimamenn skoruðu úr einu slíku á lokamínútu venjulegs leiktíma.
Varamaðurinn Viðar Þór Sigurðsson skoraði þá eftir mikið klafs í teignum eftir hornspyrnu. Markið reyndist sigurmark leiksins og annar sigur Vestra í röð staðreynd. Þróttur er áfram án stiga og hefur einungis skorað eitt mark á leiktíðinni.
Athugasemdir