12.07.22 - 14:29
Brynjar Ingi Erluson
Ajax kaupir Wijndal frá AZ (Staðfest)

Owen Wijndal skrifaði undir samning til 2027

Mynd: Ajax

Hollenski vinstri vængbakvörðurinn Owen Wijndal gerði í dag fimm ára samning við Ajax, en hann kemur frá uppeldisfélagi sínu, AZ Alkmaar.
Bakvörðurinn knái var gerður að fyrirliða AZ á síðasta tímabili eftir að Teun Koopmeiners yfirgaf félagið en frammistað Wijndal með AZ síðustu ár vann honum inn sæti í hollenska landsliðið.
Hann hefur nú ákveðið að færa sig yfir til besta liðsins í Hollandi en Ajax borgar aðeins 10 milljónir evra fyrir leikmanninn.
Wijndal skrifaði undir samning til 2027 og kemur hann til með að fylla skarð Nicolas Tagliafico sem er á förum í sumar.
Wijndal, sem er 22 ára gamall, á ellefu landsleiki að baki fyrir Holland og mun væntanlega fara með liðinu á HM í Katar síðar á þessu ári.