Bologna fær nýjan Skota í hópinn (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA
Skoski landsliðsmaðurinn Lewis Ferguson hefur valið að skipta yfir í ítölsku deildina til Bologna frekar heldur en í Championship deildina til Millwall.
Bologna borgar 3 milljónir punda fyrir Ferguson sem er 22 ára gamall miðjumaður og hefur verið algjör lykilmaður í liði Aberdeen undanfarin ár.
Ítalska félagið er nýlega búið að græða væna fúlgu fjárs á skoska bakverðinum Aaron Hickey, sem var keyptur til Brentford á dögunum, og vonast til að Ferguson verði jafn öflugur.
Ferguson skoraði 16 mörk í 44 leikjum á síðustu leiktíð og tímabilið þar á undan setti hann 10 mörk í 41 leik auk þess að gefa 5 stoðsendingar.
Ferguson er markheppinn miðjumaður og á fjóra A-landsleiki að baki fyrir Skotland eftir að hafa verið lykilmaður í U21 og U19 liðunum.
Ferguson skrifar undir fjögurra ára samning við Bologna með möguleika á eins árs framlengingu.
Bologna endaði í 13. sæti ítölsku deildarinnar á síðustu leiktíð með 46 stig.
Ferguson mun berjast við menn á borð við Jerdy Schouten og Mattias Svanberg um sæti í byrjunarliðinu.


Mynd: Getty Images
