Fotbolti.net
12.07.22 - 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Castillejo til Valencia á frjálsri sölu frá Milan (Staðfest)

Castillejo skoraði 10 mörk og gaf 15 stoðsendingar í 113 leikjum með AC Milan.

Castillejo skoraði 10 mörk og gaf 15 stoðsendingar í 113 leikjum með AC Milan.

Canon

Mynd: EPA

Valencia er búið að krækja í spænska kantmanninn Samu Castillejo á frjálsri sölu frá AC Milan. Hann skrifar undir þriggja ára samning.

Castillejo hefur verið hjá Milan síðustu fjögur ár eftir að hann kom frá Villarreal í skiptum fyrir Carlos Bacca.

Hann spilaði 113 leiki á tíma sínum hjá Milan en fékk aðeins að koma við sögu í fimm leikjum er Milan vann Ítalíumeistaratitilinn á síðustu leiktíð.

Castillejo er 27 ára gamall og átti eitt ár eftir af samningnum við Milan en fær að fara á frjálsri sölu þar sem Ítalíumeistararnir eru sáttir með að missa hann af launaskrá.

Hjá Valencia mun Castillejo berjast við Yunus Musah og Goncalo Guedes um byrjunarliðssæti. Hinn örvfætti Castillejo er hægri kantmaður að upplagi en getur einnig leikið vinstra megin.

Valencia endaði í 9. sæti spænsku deildarinnar á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.