12.07.22 - 17:40
Ívan Guðjón Baldursson
Joshua King fer til Fenerbahce (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Tyrkneska stórveldið Fenerbahce er búið að staðfesta komu norska framherjans Joshua King sem kemur á frjálsri sölu.
King lék með Watford á síðustu leiktíð en þar áður var hann hjá Everton, Bournemouth og Blackburn.
King er geysifljótur framherji sem á 20 mörk í 62 landsleikjum með Noregi. Hann skoraði 5 mörk í 32 úrvalsdeildarleikjum er Watford féll á síðustu leiktíð en þar áður hafði hann verið lykilmaður í liði Bournemouth þar sem hann skoraði 16 mörk á sínu besta úrvalsdeildartímabili.
„Félagið hefur náð samkomulagi við norska fótboltamanninn Joshua King. Leikmaðurinn gengst undir læknisskoðun í Istanbúl í kvöld og verður svo kynntur almenningi," segir í yfirlýsingu frá Fenerbahce.
