Fotbolti.net
12.07.22 - 09:49
Brynjar Ingi Erluson

Nani semur við Melbourne Victory í Ástralíu (Staðfest)

Nani er genginn til liðs við Melbourne Victory

Nani er genginn til liðs við Melbourne Victory

Canon

Mynd: Getty Images

Ástralska félagið Melbourne Victory hefur gengið frá samningum við portúgalska vængmanninn Luis Nani, en hann kemur á frjálsri sölu og gerir eins árs samning við félagið.
Nani, sem er 35 ára gamall, lék með Venezia í Seríu A á síðustu leiktíð en yfirgaf félagið eftir að það féll aftur niður í B-deildina.

Portúgalinn hefur spilað fyrir sex önnur félög á ferlinum en hann lék meðal annars 230 leiki og skoraði 40 mörk fyrir Manchester United frá 2007 til 2015.

Hann vann ensku úrvalsdeildina fjórum sinnum og Meistaradeildina einu sinni með félaginu, en Nani hefur einnig spilað fyrir Sporting, Lazio, Fenerbahce, Valencia og Orlando City.

Nani hefur nú gert eins árs samning við ástralska félagið Melbourne Victory.

Nani á að baki 112 landsleiki og 24 mörk fyrir portúgalska landsliðið og var meðal annars í hópnum sem vann Evrópumótið fyrir sex árum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.