Rangers festir kaup á Rabbi Matondo (Staðfest)

Matondo á ellefu landsleiki að baki fyrir Wales.

Mynd: EPA

Matondo á ellefu landsleiki að baki fyrir Wales.

Mynd: EPA
Rangers er búið að festa kaup á velska framherjanum Rabbi Matondo, sem átti eitt ár eftir af samningi sínum við Schalke og kostar um það bil 3 milljónir punda.
Matondo er 21 árs gamall og skrifar undir fjögurra ára samning skoska stórveldið.
Hann þótti meðal efnilegustu leikmanna Evrópu á sínum tíma þegar hann kom upp í gegnum akademíu Manchester City.
Schalke keypti 18 ára gamlan Matondo fyrir 11 milljónir punda í janúar 2019 en honum tókst ekki að sanna sig í Þýskalandi.
Schalke lánaði hann því út til Stoke og svo til Cercle Brugge. Matondo fann taktinn í Belgíu á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 10 mörk og gaf tvær stoðsendingar í 27 leikjum.
💙 Welcome to Rangers, @rabbi_matondo 👇
— Rangers Football Club (@RangersFC) July 12, 2022
