Fotbolti.net
12.07.22 - 09:55
Brynjar Ingi Erluson

Rodri framlengir við Man City til 2027 (Staðfest)

Rodri verður áfram hjá Man City

Rodri verður áfram hjá Man City

Canon

Mynd: Heimasíða Manchester City

Spænski miðjumaðurinn Rodri framlengdi í dag samning sinn við Manchester City til ársins 2027.
Rodri, sem er 26 ára gamall, var keyptur til Man City frá Atlético Madríd fyrir þremur árum og hefur verið gríðarlega mikilvægur hlekkur á miðsvæði liðsins.

Á þessum þremur árum hefur hann spilað 151 leik og skorað 13 mörk og unnið ensku úrvalsdeildina tvisvar.

Hann framlengdi í dag samning sinn við félagið um þrjú ár eða til 2027, en hann átti tvö ár eftir af fyrri samningi.

„Man City gefur mér besta tækifærið á að vinna titla og því er ég ánægður að geta verið lengur hér," sagði Rodri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.