Aston Villa að stela Manzambi

Mynd: EPA

Mynd: EPA
The Athletic greinir frá því að Aston Villa er að stela Svisslendingnum unga Johan Manzambi undan nefinu á Newcastle.
Freiburg samþykkti tilboð frá Newcastle sem hljóðar upp á um 60 milljónir evra, en leikmaðurinn var ekki búinn að samþykkja samningstilboð frá félaginu.
Newcastle var að gera sitt besta til að sannfæra Manzambi og sendi stjórnendur sína á fund með umboðsteymi hans, en það lítur allt út fyrir að leikmaðurinn fari frekar til Aston Villa sem tekur þátt í Meistaradeild Evrópu.
Manzambi er tvítugur sóknartengiliður sem hefur skinið skært á heimsmeistaramótinu í sumar.

TENGT EFNI