Trossard á eftir að gefa grænt ljós

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Belgíski kantmaðurinn Leandro Trossard á eftir að gefa grænt ljós fyrir félagaskiptunum til Besiktas.
Eins og Athletic greindi frá hefur Besiktas náð samkomulagi við Arsenal um kaupverð fyrir Trossard, sem nemur 20 milljónum evra.
Trossard, sem er 31 árs og með eitt ár eftir af samningi hjá Arsenal, er ekki búinn að samþykkja tilboðið frá Besiktas.
Hann er með þriggja ára samning á borðinu frá tyrkneska stórveldinu, sem inniheldur möguleika á auka ári.
Grikkinn Christos Tzolis er líklegur arftaki fyrir Trossard. Hann hefur verið meðal allra bestu leikmanna Club Brugge síðustu tvö ár og kostar rúmar 40 milljónir evra.

TENGT EFNI
Tzolis á að taka við af Trossard

Mynd: EPA