Fotbolti.net
12.07.26 - 15:47
Brynjar Ingi Erluson

Kristófer Jóns til Reggiana (Staðfest)

Kristófer Jóns til Reggiana (Staðfest)
Canon

Mynd: Reggiana FC

Kristófer Jónsson skrifaði í dag undir tveggja ára samning við ítalska C-deildarliðið Reggiana, en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Triestina.
Kristófer er 23 ára gamall miðjumaður sem er uppalinn hjá Haukum, en hefur einnig spilað með Val hér heima.

Hann fór ungur til Venezia á Ítalíu þar sem hann lék með unglinga- og varaliði félagsins.

Árið 2023 gekk hann í raðir Triestina þar sem hann spilaði í þrjú ár við sérstaklega krefjandi aðstæður. Félagið braut fjárhagsreglur og var sakað um peningaþvætti af ítölskum yfirvöldum. Í kjölfarið voru alls 23 stig dregin af liðinu, sem varð á endanum til þess að það féll niður í D-deild.

Kristófer yfirgaf Triestina í sumar og er nú genginn í raðir Reggiana. Samningurinn er til tveggja ára og þar hittir hann aftur sinn gamla þjálfara, Attilio Tesser, sem stýrði honum hjá Triestina tímabilið 2023-24.

Reggiana féll úr B-deildinni á síðustu leiktíð og leikur því í C-deildinni á komandi tímabili.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.