Fotbolti.net
12.07.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fékk rautt spjald fyrir dýfu og fór grátandi af velli

Fékk rautt spjald fyrir dýfu og fór grátandi af velli
Canon

Mynd: EPA

Breel Embolo, framherji svissneska landsliðsins, vill sennilega gleyma leiknum gegn Argentínu í 8-liða úrslitum í nótt þegar liðið féll úr leik á HM.

Alexis Mac Allister sá til þess að Argentína var með 1-0 forystu í hálfleik. Sviss var nýbúið að jafna metin þegar Embolo fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt.
Dómarinn dæmdi aukaspyrnu og gult spjald á Leandro Paredes þar sem hann taldi að Argentínumaðurinn hafði brotið á Embolo. Hann skoðaði atvikið í VAR og sá að Embolo dýfði sér greinilega og hann fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Embolo var alveg eyðilagður og samherjar hans hughreystu framherjann þegar hann var í tárum sínum áður en hann gekk af velli.

Leikurinn fór í framlengingu þar sem Julian Alvarez og Lautaro Martinez innsigluðu sigur Argentínu. Liðið mætir Englandi í undanúrslitum.

Sjáðu dýfuna hér


Breel Embolo broke down in tears after being sent off
by
u/Alsace2025 in
soccer
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.