Fotbolti.net
12.07.26 - 17:40
Ívan Guðjón Baldursson

Ætla að sannfæra Manzambi

Ætla að sannfæra Manzambi
Canon

Mynd: EPA

Svisslendingurinn efnilegi Johan Manzambi er ekki búinn að samþykkja samningstilboð frá Newcastle United eftir að enska úrvalsdeildarfélagið náði samkomulagi við Freiburg um kaupverð fyrir leikmanninn.
Manzambi er 20 ára gamall og lét ljós sitt skína með Sviss á heimsmeistaramótinu, en þjóðin var slegin úr leik af ríkjandi heimsmeisturum Argentínu í nótt.

Manzambi hefur núna tíma til að taka ákvörðun varðandi framtíð sína, en Freiburg er reiðubúið til að selja leikmanninn fyrir um 60 milljónir evra.

Stjórnendur Newcastle hafa sett sig í samband við umboðsteymi Manzambi í tilraun til að sannfæra sóknartengiliðinn um að skipta til félagsins.

Það er sumar stórra breytinga hjá Newcastle eftir að félagið seldi lykilmennina Anthony Gordon og Sandro Tonali snemma í sumarglugganum. Bruno Guimaraes gæti einnig verið á leið burt.

Óttast samkeppni um Manzambi
TENGT EFNI

Óttast samkeppni um Manzambi

Ætla að sannfæra Manzambi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.