12.08.13 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Chamakh til Crystal Palace (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Marouane Chamakh spilar með nýliðum Crystal Palace á þessu tímabili en hann skrifaði undir samning út tímabilið.
Chamakh er 29 ára sóknarmaður sem kom til Arsenal fyrir þremur árum en tókst ekki að brjótast inn í byrjunarlið Arsene Wenger.

,,Það gleður Crystal Palace að staðfesta komu sóknarmannsins Marouane Chamakh á eins árs samning frá Arsenal,\" stendur á vefsíðu Palace.
,,Sóknarmaðurinn frá Marokkó stóðst læknisskoðun og fær treyju númer 29.\"
Chamakh á 63 landsleiki að baki og hefur skorað í þeim 17 mörk. Hann er þriðji sóknarmaðurinn sem kemur til Palace í sumar eftir komu Kevin Phillips og Dwight Gayle.
Chamakh var lánaður til West Ham síðari hluta síðasta tímabils og lék þrjá leiki án þess að skora.