Fotbolti.net
12.08.13 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Ondrej Celustka til Sunderland (Staðfest)

Ondrej Celustka til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur fengið hægri bakvörðinn Ondrej Celustka á láni frá Trabzonspor í Tyrklandi.

Þessi 24 ára gamli Tékki hefur einnig leikið með FC Tescoma Zlin, Slavia Prag og Palermo á ferli sínum.

Miðjumaðurinn Craig Gardner hefur leikið í stöðu hægri bakvarðar á undirbúningstímabilinu en Celstka gæti nú leyst hann af hólmi.
Celustka er tíundi leikmaðurinn sem Paolo Di Canio fær til Sunderland í sumar.

Áður höfðu Valentin Roberge, Modibo Diakite, Vito Mannone, Cabral, Emanuele Giaccherini, David Moberg Karlsson, El-Hadji Ba,Duncan Watmore og Jozy Altidore komið til félagsins.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.