12.08.14 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Diego Contento frá Bayern til Bordeaux (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Franska úrvalsdeildarliðið Bordeaux hefur fengið vinstri bakvörðinn Diego Contento frá Bayern München en franska félagið staðfesti þetta í gær.
Contento braut sér leið inn í lið Bayern árið 2009 en síðan þá hefur hann einungis verið varaskeifa.
Hann var orðaður við fjölmörg lið en hann hefur nú samið við Bordeaux í Frakklandi og skrifaði hann þar undir fjögurra ára samning.
,,Hann eyddi fimm árum með aðalliði Bayern, þó svo hann hafi ekki spilað marga leiki með liðinu. Við erum hér með mjög svo metnaðarfullan leikmann sem vill sýna sig og sanna,\" sagði í yfirlýsingu Bordeaux.