12.08.14 - 22:00
Magnús Már Einarsson
Wayne Rooney verður fyrirliði Manchester United (Staðfest)

Rooney verður með bandið.

Mynd: Getty Images

Rooney verður með bandið.

Mynd: Getty Images
Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur staðfest að Wayne Rooney verði fyrirliði liðsins á komandi tímabili.
Nemanja Vidic hefur verið fyrirliði Manchester United en hann fór til Inter í sumar.
<i>,,Það er alltaf mikilvægt val að velja fyrirliða. Wayne hefur sýnt frábært hugarfar í öllu sem hann hefur gert,\"</I> sagði Van Gaal.
<i>,,Ég hef hrifist af fagmennsku hans sem og viðhorfi hans til æfinganna og skipulagsins hjá mér. Hann er góð fyrirmynd fyrir yngri leikmenn liðsins og ég hef trú á að hann muni setja hjarta sitt og sál í fyrirliða stöðuna.\"</I>
Skoski miðjumaðurinn Darren Fletcher verður varafyrirliði hjá United.
<i>,,Darren er náttúrulegur leiðtogi og hann verður fyrirliði þegar Wayne spilar ekki. Darren er mjög reyndur leikmaður og mjög vinsæll í búningsklefanum. Ég veit að hann mun vinna vel með Wayne.\"</I>

Hinn 28 ára gamli Rooney er sjálfur mjög stoltur af því að fá fyrirliðabandið.
,,Það er mikill heiður fyrir mig og fjölskyldu mína að vera útnefndur fyrirliði hjá þessu frábæra félagi. Þetta er staða sem ég mun taka með stolti. Liðsandinn hefur alltaf verið góður hjá okkur og ég er þakklátur stjóranum fyrir að hafa trú á mér. Ég hlakka til að leiða liðið út í fyrsta leik okkar á nýju tímabili á laugardag,\" sagði Rooney.