Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 12. ágúst 2020 14:00
Magnús Már Einarsson
Valencia setur alla leikmenn nema einn á sölulista
Mynd: Getty Images
Valencia hefur sett alla leikmenn sína á sölulista fyrir utan bakvörðinn Jose Luis Gaya.

Kórónaveiran hefur haft mjög slæm áhrif á fjárhag Valencia og félagið þarf að selja leikmenn í sumar.

Ferran Torres var seldur til Manchester City á 21 milljón punda í síðustu viku og Francis Coquelin og Dani Parejo eru báðir á leið til nágrannana í Villarreal.

Javi Gracia, nýráðinn þjálfari Valencia, hefur fengið þau skilaboð að allir leikmenn liðsins séu til sölu nema Gaya.

Barcelona hefur sýnt Gaya áhuga en Valencia vill ekki missa hann og ætlar að gera hann að fyrirliða á næstunni.
Athugasemdir
banner
banner