Villarreal hefur keypt miðjumennina Dani Parejo og Francis Coquelin frá nágrönnum sínum í Valencia.
Coquelin er Frakki sem fór ungur til Arsenal en hann lék 105 leiki með liðinu í ensku úrvalsdeildinni á árunum 2008 til 2018.
Undanfarin tvö tímabil hefur hinn 27 ára gamli Coquelin síðan spilað með Valencia.
Parejo hefur spilað með Valencia frá árinu 2011 en hann lék áður með Real Madrid, Getafe og QPR.
Valencia er í miklum fjárhagsvandræðum og hefur sett alla leikmenn sína nema einn á sölulista.
Athugasemdir