12.08.21 - 13:08
Elvar Geir Magnússon
Bielsa gerir nýjan eins árs samning við Leeds (Staðfest)

Bielsa gerir nýjan samning.

Mynd: Getty Images

Bielsa gerir nýjan samning.

Mynd: Getty Images
Argentínumaðurinn Marcelo Bielsa hefur gert samkomulag um nýjan samning við Leeds United en þetta staðfesti hann á fréttamannafundi í dag.
Bielsa er vanur því að gera samning um eitt ár í einu og gerir enga undantekningu á því.

Íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir að formlega verði tilkynnt um nýja samninginn í dag.
Bielsa hefur náð frábærum árangri hjá Leeds og liðið spilar stórskemmtilegan fótbolta. Hann kom liðinu upp úr Championship-deildinni og liðið hafnaði í níunda sæti í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Á fréttamannafundinum í dag fór Bielsa fögrum orðum um Leeds og hversu mikinn metnað félagið hefur sýnt í að bæta æfingasvæðið og aðra aðstöðu hjá liðinu. Þá segist hann ánægður með leikmannahópinn.
„Ég er ánægður með hópinn sem ég er með í höndunum," segir Bielsa. Leeds hefur leik á nýju tímabili með því að leika gegn Manchester United á Old Trafford í hádeginu á laugardaginn.
Leeds er spáð níunda sæti á tímabilinu