Fotbolti.net
12.08.21 - 21:25
Ívan Guðjón Baldursson

Birkir Bjarnason til Tyrklands (Staðfest)

Birkir Bjarnason til Tyrklands (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tyrkneska félagið Adana Demirspor er búið að staðfesta komu íslenska landsliðsmannsins Birkis Bjarnasonar á tveggja ára samning.
Demirspor vann B-deildina í fyrra og leikur því í efstu deild í vetur og á leik við stórveldið Fenerbahce í fyrstu umferð núna á sunnudaginn.

Hinn 33 ára gamli Birkir hefur undanfarin ár verið hjá Brescia í ítalska boltanum þar sem hann lék 40 leiki á einu og hálfu ári. Hann hefur meðal annars leikið fyrir Sampdoria, Basel og Aston Villa á ferlinum.

Hjá Demirspor finnur Birkir leikmenn á borð við Mario Balotelli, Britt Assombalonga, Younes Belhanda, Gökhan Inler og Benjamin Stambouli.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.