Fotbolti.net
12.08.21 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

Christos Tzolis til Norwich (Staðfest)

Christos Tzolis.

Christos Tzolis.

Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Norwich í ensku úrvalsdeildinni hafa samið við gríska vængmanninn Christos Tzolis og fær hann treyju númer 18 hjá félaginu.

Tzolis er 19 ára gamall og kemur frá PAOK. Á síðasta tímabili skoraði hann 16 mörk og átti 10 stoðsendingar í alls 46 leikjum í öllum keppnum. Hann semur við Norwich til 2026.
„Ég vil þakka öllum fyrir góðar móttökur. Ég er ánægður með að vera orðinn hluti af þessu liði og er spenntur að sjá okkar stuðningsmenn. Það er gott verkefni fyrir mig að skrifa undir hérna," segir Tzolis

„Síðasta tímabil var mitt fyrsta heila tímabil í aðalliðs fótbolta. Ég fann mig vel og við urðum grískir bikarmeistarar. Ég átti gott tímabil og vonast til að halda uppteknum hætti í ensku úrvalsdeildinni."

Norwich tekur á móti Liverpool í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.