Fotbolti.net
12.08.21 - 17:21
Elvar Geir Magnússon

Lukaku kominn til Chelsea (Staðfest)

Lukaku kominn til Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Chelsea

Romelu Lukaku er aftur orðinn leikmaður Chelsea en enska félagið hefur keypt hann frá Inter á 97,5 milljónir punda sem er hæsta verð sem það hefur greitt fyrir leikmann.

Á heimasíðu Chelsea er sagt að Lukaku sé „kominn heim".

„Ég kom hingað þegar ég var ungur og átti margt eftir ólært. Nú kem ég til baka með mikla reynslu og meiri þroska," segir Lukaku.

Það hafa verið greiddar hærri fjárhæðir fyrir Lukaku en nokkurn annan leikmann í sögunni. Samtals hefur hann verið keyptur fyrir 290 milljónir punda.
Lukaku er markahæsti leikmaður Belgíu frá upphafi og er dýrasti leikmaður sem ítalskt félag hefur selt.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.