12.08.21 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Real Madrid lánar Kubo til Mallorca (Staðfest)

Takefusa Kubo

Mynd: EPA

Takefusa Kubo

Mynd: EPA
Takefusa Kubo, leikmaður Real Madrid á Spáni, er genginn í raðir Real Mallorca á láni út tímabilið.
Japanski landsliðsmaðurinn fer nú á fjórða lánssamninginn á síðustu tveimur árum en þetta er í annað sinn sem hann spilar fyrir Mallorca.
Hann var keyptur frá Tokyo FC fyrir tveimur árum síðan og þykir eitt mesta efni Japans.
Kubo gerði lánssamning út tímabilið en Mallorca er nýliði í spænsku deildinni þetta árið.
Hann var keyptur frá Tokyo FC fyrir tveimur árum síðan og þykir eitt mesta efni Japans.
Kubo gerði lánssamning út tímabilið en Mallorca er nýliði í spænsku deildinni þetta árið.
