12.08.21 - 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Verona kaupir Ilic af Manchester City (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska félagið Hellas Verona er búið að staðfesta kaup á miðjumanninum Ivan Ilic frá Manchester City.
Hinn tvítugi Ilic var lykilmaður í yngri landsliðum Serbíu og á tvo leiki að baki fyrir aðalliðið. Hann hefur verið hjá Man City undanfarin fjögur ár en lék að láni með Verona á síðustu leiktíð.
Þessi ungi leikmaður hreif þjálfarateymi Verona og ákvað félagið að festa kaup á honum fyrir tæpar 7 milljónir punda.
Ilic er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Verona en á dvöl sinni hjá City var hann lánaður til Rauðu stjörnunnar, Zemun og NAC Breda.