Fotbolti.net
12.08.26 - 14:01
Elvar Geir Magnússon

Borguðu kynlífsþjónustu fyrir dómara

Frá höfuðstöðvum fótboltasambands Suður-Kóreu.

Frá höfuðstöðvum fótboltasambands Suður-Kóreu.

Canon

Mynd: EPA

Venja var að erlendir fótboltadómarar sem komu til að starfa í Suður-Kóreu fengju kynlífsþjónustu sem var útveguð og borguð af suðurkóreska fótboltasambandinu. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem íþróttamálaráðuneytið lét framkvæma eftir að ásakanir komu fram.

Fótboltasambandið í Suður-Kóreu hefur beðist afsökunar eftir að skýrsla, sem er frá 2016, var opinberuð þegar fjölmiðillinn JTBC komst yfir hana.

Háar fjárhæðir voru borgaðar af reikningi fótboltasambandsins til að greiða fyrir „kynferðislega afþreyingu á nuddstofum“, eins og það er orðað í skýrslunni.

Þar á meðal var kynlífsþjónusta borguð fyrir dómara sem dæmdu leiki í undankeppni HM 2014 og fyrir Ólympíuleikana í London 2012. Suður-Kórea komst inn á bæði mótin.

Útgjöldin voru skráð undir fölskum formerkjum og haldið því fram að peningarnir hefðu farið í mat, drykki eða nudd. Starfsmaður sambandsins segir að þetta hafi verið algeng venja á þessum tíma en í afsökunarbeiðni suðurkóreska sambandsins er það tekið fram að þessi háttur sé alls ekki lengur.
Mikil ólga er í kringum fótboltann í Suður-Kóreu og mikil reiði meðal almennings eftir vonbrigðaframmistöðu landsliðsins á HM í sumar en liðið komst ekki upp úr riðli sínum. Þjálfarinn Hong Myung-bo og Chung Mong-gyu forseti sambandsins sögðu báðir af sér. Opinberun skýrslunnar eykur enn á reiði fólks.
Reiðir fótboltaáhugamenn láta óánægju sína með landsliðiðið og þjálfarann í ljós.

Reiðir fótboltaáhugamenn láta óánægju sína með landsliðiðið og þjálfarann í ljós.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.