12.08.26 - 11:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vedran hættir hjá Keflavík og fer erlendis (Staðfest)

Mynd: Keflavík

Mynd: Keflavík

Vedran Medenjak hefur látið af störfum sem þjálfari kvennaliðs Keflavíkur eftir að honum bauðst starf erlendis. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er hann á leið til Kanada og mun starfa í akademíu þar.
Vedran tók við Keflavíkurliðinu fyrir tímabilið en hann hafði áður starfað sem yngri flokka þjálfari hjá félaginu frá árinu 2023.
Hann er króatískur þjálfari með UEFA Pro gráðuna. Aðstoðarþjálfarinn Aron Elís Árnason tekur við liðinu og stýrir því út tímabilið.
Keflavík er í 7. sæti Lengjudeildarinnar þegar liðið á sex leiki eftir af tímabilinu. Liðið er fimm stigum frá fallsæti og sex stigum frá öðru sætinu. Næsti leikur liðsins er leikur gegn ÍA á útivelli á föstudag.

Tilkynning Keflavíkur
Knattspyrnudeild Keflavíkur þakkar Vedran fyrir störf hans og framlag til félagsins undanfarin ár og óskar honum alls hins besta í nýju starfi.
Aron Elís Árnason, aðstoðarþjálfari liðsins, tekur við þjálfun þess út tímabilið. Honum til aðstoðar verða Sigurður Ingi Bergsson og Elva Margrét Sverrisdóttir.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Grótta | 13 | +12 | 29 |
| 2 | KR | 12 | +15 | 23 |
| 3 | HK | 13 | +3 | 20 |
| 4 | Selfoss | 12 | +6 | 19 |
| 5 | ÍA | 13 | +6 | 18 |
| 6 | Haukar | 12 | -5 | 18 |
| 7 | Keflavík | 12 | +10 | 17 |
| 8 | FHL | 12 | +2 | 17 |
| 9 | Völsungur | 13 | -4 | 12 |
| 10 | Tindastóll | 12 | -45 | 3 |