12.08.26 - 12:23
Kári Snorrason
Segir af sér eftir tapið gegn Víkingsbönunum

Dejan Stankovic.

Mynd: EPA

Leikmenn Hapoel fagna marki á Víkingsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dejan Stankovic.

Mynd: EPA
Dejan Stankovic, þjálfari Rauðu Stjörnunnar, hefur sagt af sér eftir óvænt tap liðsins gegn Hapoel Be'er Sheva í forkeppni Meistaradeildarinnar í gær.
Stankovic, sem er fyrrum leikmaður Inter, tók við liðinu í desember og stýrði hann liðinu til sigurs í serbnesku úrvalsdeildinni í vor. Einvígið gegn Hapoel endaði 3-0, ísraelska liðinu í vil.

Í umferðinni á undan lék Hapoel gegn Víkingi og vann Víkingur fyrri leikinn, 2-1.
Seinni leikurinn fór fram í Ungverjalandi vegna ástandsins í Ísrael og þar fór Hapoel með 2-0 sigur af hólmi og þar með tryggði sig í þriðju umferð.
Með sigri Hapoel gegn Rauðu Stjörnunni hefur liðið tryggt sig í Evrópudeildina. Liðið fer í úrslitaeinvígi um sæti í Meistaradeildinni gegn Sabah FK frá Aserbaísjan.
Eftir tapið gegn Hapoel fór Víkingur í forkeppni Evrópudeildarinnar. Liðið er 3-0 undir í einvíginu gegn svissnesku meisturunum í Thun en seinni leikurinn fer fram á Víkingsvelli á morgun.