Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 12. september 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Góðar fréttir fyrir Liverpool - Insigne og Milik meiddir
Lorenzo Insigne
Lorenzo Insigne
Mynd: Getty Images
Liverpool og Napoli mætast í fyrsta leik liðanna í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á þriðjudag en tveir lykilmenn Napoli eru líklegir til að missa af leknum.

Liðin voru saman í riðli á síðasta tímabili en þau enduðu bæði með 9 stig og var það útivallarmark Liverpool sem reyndist dýrmætt og fleytti þeim áfram í 16-liða úrslitin.

Lorenzo Insigne og Arkadiusz Milik voru öflugir í leikjunum en Insigne skoraði sigurmarkið í Napoli. Hann hefur verið að æfa einn hjá Napoli og er talið að hann verði ekki með gegn Liverpool.

Milik hefur þá einnig verið að glíma við meiðsli síðasta mánuðinn og er búist við því að hann missi af leiknum en Herving Lozano og Fernando Llorente munu leysa þá af hólmi.
Athugasemdir
banner
banner