12.09.26 - 20:48
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Atalanta tapaði óvænt á heimavelli

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Atalanta 1 - 2 Cagliari
0-1 Paul Mendy ('19 )
1-1 Gianluca Scamacca ('41 )
1-2 Daniel Maldini ('61 , víti)
0-1 Paul Mendy ('19 )
1-1 Gianluca Scamacca ('41 )
1-2 Daniel Maldini ('61 , víti)
Atalanta og Cagliari áttust við í lokaleik dagsins í efstu deild ítalska boltans og náðu gestirnir forystunni þegar Paul Mendy skoraði eftir frábæra skyndisókn á 19. mínútu.
Heimamenn voru meira með boltann en sköpuðu sér ekki mikið. Gianluca Scamacca tókst þó að skora eftir mark úr skyndisókn. Boltinn barst til hans eftir að Charles De Ketelaere missti hann frá sér og skoraði Scamacca laglegt mark með viðstöðulausu skoti.
Atalanta var sterkara liðið í síðari hálfleik en tókst ekki að skora. Þess í stað var afar óheppileg og umdeild hendi dæmd á Sead Kolasinac innan vítateigs og skoraði Daniel Maldini af vítapunktinum.
Það reyndist sigurmark leiksins, niðurstaðan óvæntur sigur Cagliari í Bergamó.
Cagliari er með 9 stig eftir 4 umferðir á meðan Atalanta situr eftir með 6 stig eftir tvo tapleiki í röð.

TENGT EFNI