12.10.14 - 13:51
Þórður Vilberg Guðmundsson
Neil Lennon tekur við Bolton (Staðfest)

Neil Lennon er nýr stjóri Bolton Wanderers

Mynd: Getty Images

Bolton Wanderers hefur staðfest að Neil Lennon hafi verið ráðinn knattspyrnustjóri félagsins.
Lennon, sem er 43 ára, hætti sem þjálfir Celtic í vor eftir að hafa stýrt þeim með góðum árangri í fjögur ár. Undir hans stjórn varð Celtic þrisvar skoskur meisatari og tvisvar bikarmeistari
Lennon tekur við Bolton af Dougie Freedman sem hætti í byrjun mánaðarins eftir skelfilegt gengi liðsins en Bolton situr á botni Championship deildarinnar með aðeins 5 stig.
Í tilkynningu frá Bolton segir \" Við erum ánægðir og spenntir með ráðningu Neil Lennon. Hann kemur með gríðarlega reynslu inní liðið og er staðráðin í að snúa gengi liðsins til betri vegar\"
Lennon til aðstoðar hjá Boltan verður Johan Mjallby sem var einnig aðstoðarmaður hans hjá Celtic.