Fotbolti.net
12.10.15 - 09:35
Magnús Már Einarsson

Þorsteinn Már í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Jónas Gestur Jónasson og Þorsteinn Már Ragnarsson.

Jónas Gestur Jónasson og Þorsteinn Már Ragnarsson.

Canon

Mynd: Víkingur Ólafsvík

Framherjinn Þorsteinn Már Ragnarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við sitt gamla félag Víking Ólafsvík.

Þorsteinn Már hefur leikið með KR undanfarin fjögur tímabil en á þeim tíma hefur hann orðið tvívegis bikarmeistari og einu sinni Íslandsmeistari.

Samningur hans við KR er að renna út og Þorsteinn hefur ákveðið að spila með Ólafsvikingum í Pepsi-deildinni næsta sumar.
„Það er mikil ánægja á Snæfellsnesi að fá Þorstein aftur heim en hann hefur leikið 123 mótsleiki með Víking og gert í þeim 43 mörk en undanfarin ár hefur hann spilað með KR,\" segir í tilkynningu frá Víkingi.

Hinn 25 ára gamli Þorsteinn spilaði með Víkingi í fimm ár áður en hann gekk í raðir KR haustið 2011.

Í sumar var hávær orðrómur um að hann myndi fara í Breiðablik eða Val en á endanum kláraði Þorsteinn tímabilið með KR.
Þorsteinn í leik með Ólsurum árið 2011.

Þorsteinn í leik með Ólsurum árið 2011.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.