Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 12. október 2020 18:30
Victor Pálsson
Memphis býst við að lið sýni áhuga
Memphis Depay, leikmaður Lyon, býst við að mörg félög muni sýna sér áhuga þegar janúarglugginn opnar.

Memphis var sterklega orðaður við Barcelona í sumarglugganum en ekkert varð úr þeim skiptum að lokum.

Hollendingurinn verður samningslaus næsta sumar og þykir afar ólíklegt að hann skrifi undir nýjan samning.

Memphis var áður á mála hjá Manchester United á Englandi en hann náði sér ekki á strik þar á bæ.

„Ég er 26 ára gamall og ég mun varla kosta neitt. Við getum búist við að félög muni sýna áhuga," sagði Memphis.

„Það styttist í janúar. Við þurfum að sjá hvernig hlutirnir eru þá. Það er ekki víst að ég sé að fara en það er líklegra að félög sýni áhuga."

Athugasemdir