Miðjumaðurinn Lára Kristín Pedersen verður áfram í herbúðum Vals á næstu leiktíð.
Hún hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Hlíðarendafélagið.
Lára Kristín er 27 ára miðjumaður sem gekk til liðs við Val um mitt síðasta tímabil eftir að hafa verið í atvinnumennsku með Napoli á Ítalíu.
Hún kom sterk inn á miðjuna og spilaði alls tíu leiki og skoraði í þeim tvö mörk. Hún var stór ástæða þess að Valur náði að landa Íslandsmeistaratitlinum.
„Það er mikil ánægja að Valur fái að njóta krafta þessa reynslumikla leikmanns næstu árin," segir í tilkynningu frá Val.
Athugasemdir