Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
   þri 12. október 2021 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Oxlade-Chamberlain íhugar að yfirgefa Liverpool
Alex Oxlade-Chamberlain.
Alex Oxlade-Chamberlain.
Mynd: EPA
Götublaðið Mirror skrifar um það að Alex Oxlade-Chamberlain sé að hugsa um að yfirgefa herbúðir Liverpool.

Hinn 28 ára gamli Oxlade-Chamberlain hefur aðeins byrjað einn leik í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Hann vill fá að spila meira og sér ekki rosalega mikla möguleika á að það gerist hjá Liverpool.

John Cross, sem er yfir íþróttadeild Mirror, skrifar greinina. Hann segir að þetta geti kveikt áhuga Arsenal, fyrrum félags Oxlade-Chamberlain.

Miðjumaðurinn vill koma sér aftur í myndina hjá enska landsliðinu og til þess að gera það, þá þarf hann að spila.

Oxlade-Chamberlain fór til Liverpool frá Arsenal árið 2017. Hann hefur átt góð augnablik hjá Liverpool en meiðsli hafa strítt honum mikið.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner