26.11.26 - 13:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aukin ábyrgð á Loga Tómassyni

Með fyrirliðabandið.

Mynd: Samsunspor

Mynd: Samsunspor

Með fyrirliðabandið.

Mynd: Samsunspor
Logi Tómasson varð á þessu tímabili gerður að þriðja fyrirliða tyrkneska liðsins Samsunspor. Hann er á sínu öðru tímabili hjá félaginu og er lykilmaður í liðinu, ábyrgðin er orðin meiri og hann hefur borið fyrirliðabandið í þremur af síðustu fjórum leikjum. Þar á meðal gegn stórliði Galatasaray um helgina.
Hann átti gott fyrsta tímabil eftir að hafa verið keyptur frá Strömsgodset, mínútufjöldinn vakti athygli því Logi var eiginlega alltaf í liðinu og liðið var líka í Evrópukeppni, Logi spilaði því mjög marga leiki síðustu misseri. Hann hefur styrkst líkamlega eftir komuna til Tyrklands, önnur félög eru að fylgjast með honum og hafa spurst fyrir um hann.
Samsunspor átti góðan leik gegn Galatasaray og var óheppið að fá ekkert úr leiknum sem tapaðist 2-1 á útivelli. Logi átti m.a. skot í stöng í leiknum.
Samsunspor hefur byrjað tímabilið illa og er einungis með sjö stig eftir tólf umferðir. Vinstri bakvörðurinn hefur spilað allar mínúturnar á tímabilinu til þessa og skorað tvö mörk. Logi skorar mjög hátt í allri sóknartölfræði þegar kemur að bakvörðum í tyrknesku deildinni.

Logi lék þá vel með íslenska landsliðinu gegn Búlgaríu og Lúxemborg, lék þá allar mínúturnar í leikjunum tveimur.
Logi, sem er 26 ára, er samningsbundinn Samsunspor fram á sumarið 2029 og er möguleiki á árs framlengingu. Ef annað félag vill fá hann þarf að koma með stóru seðlana á borðið.