Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 12. nóvember 2019 08:00
Aksentije Milisic
„Martial lykilinn að bætingu liðsins"
James fagnar með Martial og Rashford.
James fagnar með Martial og Rashford.
Mynd: Getty Images
Daniel James, vængmaður Man Utd, segir að endurkoma Anthony Martial sé lykilinn að betri spilamennsku liðsins.

Martial var frá í tæpa tvo mánuði vegna meiðsla fyrr á tímabilinu en síðan hann sneri til baka hefur United unnið fimm af sex leikjum sínum.

„Síðan hann kom til baka höfum við bætt okkur. Hann er frábær í að tengja saman sendingar og hann getur bæði spilað stutt en einnig tekið hlaup inn í svæðin,” sagði James um Martial.

„Þá hefur hann skorað og lagt upp mörk. Hann hefur verið frábær fyrir okkur.’’

James talaði einnig um að hans eigið hlutverk hjá Man Utd hafi komið honum á óvart.


Athugasemdir
banner
banner
banner