Fotbolti.net
12.11.26 - 16:09
Kári Snorrason

Afmælisbarnið Arnar Bjarki kynntur til leiks hjá Bröndby

Fagnar 16 ára afmælisdeginum í dag.

Fagnar 16 ára afmælisdeginum í dag.

Canon

Mynd: Bröndby

Arnar Bjarki Gunnleifsson hefur verið kynntur til leiks hjá Bröndby. Hann var seldur til danska félagsins í sumar en má nú ganga formlega til liðs við Bröndby þar sem hann fagnar 16 ára afmælisdeginum í dag.

Hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið og mun byrja að æfa með liðinu í janúar 2027.

Arnar spilaði alls 26 leiki með Breiðabliki í deild og bikar í ár og skoraði hann tvö mörk.
Arnar Bjarki seldur til Bröndby (Staðfest)
TENGT EFNI

Arnar Bjarki seldur til Bröndby (Staðfest)

Arnar varð næstyngsti markaskorari í sögu efstu deildar þegar hann skoraði gegn KA. Hann fylgdi því á eftir og skoraði líka gegn Víkingi og varð sá yngsti í sögunni til að skora í tveimur leikjum í röð.

Fannar Heimisson, sem er á leið til Nordsjælland frá KR, bætti þó met Arnars undir lok tímabils og er Arnar nú þriðji yngsti markaskorari í sögu efstu deildar.

„Það er frábær tilfinning að hafa skrifað undir og ég get ekki beðið eftir að byrja, vonandi get ég byrjað að spila með meistaraflokki Bröndby sem fyrst. Mér fannst Brøndby vera besti kosturinn bæði fyrir mig og fjölskylduna mína og ég tel að þetta sé besta félagið í Danmörku,“ sagði Arnar við miðla Bröndby.

Hér að neðan má sjá myndband þar sem Arnar kynnir sig fyrir stuðningsmönnum Bröndby á íslensku.


Byrjar að æfa með Bröndby í janúar.

Byrjar að æfa með Bröndby í janúar.

Canon

Mynd: Bröndby

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.