12.11.26 - 16:08
Andri Stefánsson
Júlíus Mar: Við erum með betri hóp en þeir
Auglýsing

Var sterkur í hjarta varnarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Var sterkur í hjarta varnarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland tók á móti Grikklandi í fyrri leik liðanna í umspilinu til að komast á EM. Svekkjandi 1-1 jafntefli var niðurstaðan. Júlíus Mar kíkti í viðtal til Fótbolta.net eftir leik.

TENGT EFNI
Einkunnir U21 - Grátlegt jafntefli
Júlíus var nokkuð sáttur eftir 1-1 jafntefli gegn Grikklandi í fyrri leik liðanna í umspilinu.
„Við hefðum auðvitað viljað vinna leikinn og fara með sigur inn í seinni leikinn. En í svona umspili eru tveir leikir og við þurfum að spila báða vel til að fara áfram.“
Snjórinn hafði mikil áhrif
Mikill snjór var á vellinum og hafði það áhrif á spilamennsku liðanna.
„Snjórinn hafði augljóslega mikil áhrif. Það var erfitt að fóta sig og spila boltanum. Við vorum betri þegar við fórum að spila meira. Við vorum klárir í baráttuna og sköpuðum okkur mörg færi.“
Ísland með betri hóp en Grikkland
„Við erum með betri hóp en þeir, mér finnst það. Allir leggja sitt af mörkum, líka þeir sem koma inn á. Nú þurfum við bara að klára þetta úti.“
Hvað þurfið þið að gera til að vinna í Grikklandi?
„Við þurfum að vera klárir í návígin og halda áfram að spila okkar leik. Við erum að skapa mikið af færum og fá lítið af færum á okkur. Ef við höldum því áfram erum við líklegri til að vinna.“
Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum efst í fréttinni